hey hó let´s go
07.02.2007 18:11:53 / erny_atla

Hejdooooo

Hæmm... Langt síðan síðast... HAHA... ÉG ÆTLAÐI AÐ VERA MEÐ SVAKALEGT COMEBACK! En annars er ég komin með nýja bloggsíðu fjallar einungis um tísku... www.arnaatla.bloggar.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 14:10:34 / erny_atla

Arna snýr aftur

Já, undanfarið hef ég verið óskaplega löt við að skella inn færslum á þessarri blessuðu síðu. Ekki veit ég ástæðuna. Mér finnst alltaf jafnt áhugavert hversu löt ég er að skrifa um mitt eigið líf. Ótrúlegt, því við mannfólkið tölum örugglega 80% um okkur sjálf og um það sem er að gerast í lífi okkar. Jámm og því ætti ég að geta sagt eitthvað... Ehemm... Góð vangavelta;) Byrjum þá á því, ég, ég, ég... :) Eins og þið sjáið þá er ca. mánuður síðan ég skrifaði síðasta blogg. Ég var í tvær vikur úti í Skotlandi í flugfreyjuþjálfun. Svakalega var mikið að gera hjá mér enda var tíminn lítill og því þurfti að troða inn námskeiðum, kennslu og svo 20 flugferðum á flesta dagana, sem var ekkert grín. Og auðvitað þurfti ég að læra eins og brjálæðingur, vaknaði yfirleitt 5 á morgnana og fór að sofa um 11. En þetta var ótrúlega skemmtilegt og kynntist ég fullt af frábæru fólki. Ég búin að vera fljúga aðeins hérna heima, og ég hef líka tekið eitt leiguflug héðan til Noregs. Núna er verið að þjálfa hinar stelpurnar hérna heima og líst mér ótrúlega vel á þær allar, þær eru 10 talsins og ég held vona að flestar fái vinnu. Jamm og já, seinustu helgi fórum við Örvar á Landsflugs/Citystar árshátið á Kaffi Reykjavík. Ótrúlega kósí kvöld, geggjaður matur. Helga Braga var veislustjóri og stóð hún sig með prýði, enda mikill grínisti. Hún kom með einn góðan brandara sem er einhvervegin svona:
HVERNIG MUNDIR ÞÚ VITA AÐ ÞÚ VÆRIR Í PARTÝI MEÐ FLUGMANNI? svar: HANN MUNDI SEGJA ÞÉR ÞAÐ!

 Svo erum við Guðrún Harpa systir að fara til Danmerkur í viku til Gumma bró. Það verður svaðalegt stuð. Ætlum að borða á okkur gat alla dagana og fá hálsbólgu út af miklum hlátusköstum. :) Við förum 5. apríl! Já spáið í það... SUMARIÐ ER AÐ KOMA!!! OHH... hvað það er æðislegt. En já ég ætla að fara finna nýja beib sem mun prýða beib linkinn í smá tíma og setja inn fleiri myndir frá Aberdeen ferðinni, árshátíðinni og kannski af einhverju fleiru. bless bless :)


» 31 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 11:26:26 / erny_atla

Allt að gerast.

Komið þíð sæl. Helgin var ótrúlega fín og mikið um að vera. Við fórum meðal annars í afmæli til Rakelar frænku sem býr á Akranesi og var mikið stuð fram á svarta nótt. Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að hitta ættingjana, allir svo hressir og kátir. Á sunnudeginu komu afi, systur mömmu og fjölskyldur þeirra í miðdegiskaffi. Pabbi bjó til þrefalda uppskrift af pönnukökum og ég bjó til sjónvarpsköku og marensrétt með ávöxtum. Allir borðuðu á sig gat, en þó var átveislan ekki búin því við fórum svo til afa um kvöldmatarleytið og snæddum þar læri og með því.

Ég horfði á Kompás á sunnudaginn og fannst mér þátturinn ansi áhrifamikill. Frekar óhugnalegt að hugsa til þess að yfir áttatíu menn höfðu haft samband við þessa ungu stúlku sem var einsskonar tálbeita hjá þáttarstjórnendunum. Svo tveimur dögum seinna frétti ég að einn af þessum mönnum sem birtist í þættinum var rekinn úr vinnunni sinni. Þið sem misstuð af þessum þætti bendi ég ykkur á að kíkja á hann á www.stod2.is og smellið svo á vefsjónvarpið, veljið NFS og svo Kompás!

Ég fékk símtal á mánudaginn um að ég ætti kost á því að skella mér á flugfreyjunámskeið strax úti í Skotlandi. Ég sagðist vera til í það og ótrúlegt en satt, ég er að fara á morgunn og verð ég í 8- 10 daga þarna úti. Ég fæ meira að segja einkakennslu:) Svo síðast en ekki síst fæ ég að hitta litlu dúllurnar mínar, dætur Jóhönnu og Atla! SJIBBÍ!

En ég kveð í bili, langar að minna ykkur á að ég er búin að setja inn fleiri myndir:)

Arna fluffa.


» 22 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 16:22:29 / erny_atla

Hjellú

Ég er búinn að bæta inn nýrri beib á síðunna. Gaman af því! Ætlaði bara að láta vita. Aftur komin helgi. PUFF! Tíminn er fáránlega fljótur að líða. Fer bráðum að setja inn nýjar myndir frá síðustu helgi:)

Tútlús!


» 11 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 16:04:40 / erny_atla

Helgin

Það var ótrúlega skemmtilegt um helgina! Langt síðan ég hef haft svona mikið að gera. :o Þannig var það, að ég fór út að skemmta mér á laugardeginum og svo var laugardagurinn stútfullur af skemmtilegri dagskrá. Sunnudagurinn var reyndar rólegur en þó mjög fínn líka.

Föstudagur: Ég fór með Örvari í kveðjupartý í bæinn til Jóns og Hilmu. Verið var að kveðja Jenna, sem er að fara að flytja til Danmerkur á morgunn. Við vorum nokkur samankomin i íbúðinni þegar Jenni mætti, kom það stráknum virkilega á óvart þar sem hann hélt að kvöldið ætti bara að vera rólegt. Ég fór svo heim í Reykjanesbæ meðan Örvar var eftir og kíkti í afmælisteiti til Írisar Eddu. Hún var að halda upp á 22 ára afmælið sitt og hitti maður marga skemmtilega í því partýi. Svo lá leiðin niður í bæ og fórum við á Yello og H- punktinn. Þetta var ágætt kvöld og ótrúlega mikið í gangi:haha:.

Laugardagur: Vá þá var gaman! Við Sigurbjörg og Sigrún byrjuðum í Bláa lóninu og bauð Sigurbjörg snillingur okkur ofan í. Við böðuðum okkur í 2 tíma og vorum orðnar vel krumpaðar eftir kísilvatnið. Tókum okkur til og skutluðumst svo á Eldsmiðjuna til að fá okkur rjúkandi heita pizzu, sem var alveg geggjuð. Mæli virkilega með Eldsmiðjunni, ótrúlega góðar pizzur. Eftir að við vorum búnar að borða okkur pakksaddar ákváðum við að kíkja í keilu. Þegar við vorum komnar í Öskjuhlíðina þá fengum við þær slæmu fréttir að það væri klukkutíma bið eftir braut. Við slepptum því keilunni og kíktum í Vesturbæinn í ísbúðina frægu. Fengum okkur allar bragðaref og átum hann með bestu lyst þó svo að plássið í mallanum væri lítið. Í lokin fórum við svo í Smárabíó og sáum myndina Walk the line. Klikkuð mynd sem ég mæli með að allir kíkji á. Stútfullt í bíó og algjört stuð.

Sunnudagur: Já sunnudagurinn var svo ekkert nema afslöppun út í gegn. Pönnsur í morgunmat og rosa góð svínasteik í kvöldmat og sjoppuís á eftir.

Já svona var helgin. Skemmtileg! Ég þakka Sigurbjörgu og Sigrúnu fyrir ótrúlega skemmtilegan dag. Honum verður seint gleymt!

Adios.


» 13 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 23:51:13 / erny_atla

Yeah baby, Yeah!!!

Jessurrí BOB. Ég er komin með nýtt beib. Endilega kíkjið. En ég blogga meira eftir helgi, á meðan segji ég bara góða helgi og munið eftir hressleikanum:)

Adios


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 21:52:02 / erny_atla

Uss uss

En leiðinlegt, nú hélt ég að einhverjir mundu nú commenta, en ég þakka Sigurbjörgu og Grétu fyrir þátttökunu, virkilega fallegt af ykkur stúlkur:)
En kannski virkar þetta...

Kvittaðu nafni þínu hér fyrir neðan og :

1. Ég segi þér einhvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4. Ég segi þér fyrstu ljósu minningu mína af þér

5. Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig


» 45 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 13:02:45 / erny_atla

Könnun

Smá könnun, sá þetta á síðunni hennar Sigurbjargar og ákvað að setja þetta inná mitt blogg. Koma svo allir saman, smá comment. :)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
5. Lýstu mér í einu orði.
6. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
7. Lýst þér ennþá þannig á mig?
8. Hvað minnir þig á mig?
9. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
10. Hversu vel þekkiru mig?
11. Hvenær sástu mig síðast?
12. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
13. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Bónusspurning:
14. hvenær áttu afmæli og hvað ár komstu í heiminn??


» 13 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 22:40:43 / erny_atla

Prins Póló og kristall.

Halló :) Það er svo gott að sitja uppí sófa og vera í algjörri afslöppun á föstudagskvöldi. Og það er alls ekkert verra að vera japlandi á Prins Póló á meðan. Ágætt að vera vafrandi um á netinu og skoða bloggsíður annarra, fá smá slúður beint í æð, talandi um svakalega frétt...

Ólafur Geir Jónsson sviptur titlinum Herra Ísland 2005

Fegurðarsamkeppni Íslands hefur tekið þá ákvörðun að Ólafur Geir Jónsson, „Herra Ísland 2005“, verði sviptur titlinum og er það í fyrsta sinn í sögu Fegurðarsamkeppni Íslands sem slíkt er gert. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum samkeppninnar.

„Heilbrigt líferni og reglusemi eru m.a. þættir sem skipta miklu, þar sem gera má ráð fyrir að Herra Ísland sé fyrirmynd ungmenna í landinu, en eins og segir m.a. orðrétt í samningi sem Herra Ísland skrifar undir: „ég geri mér fulla grein fyrir því að hegðun mín skuli ávallt vera til sóma fyrir vandaða ímynd keppninnar,““ segir í tilkynningunni.

Þá segir að Ólafur Geir hafi ekki staðið undir þeim væntingum sem keppnin gerir til Herra Íslands ár hvert. Við val hans sé leitast við að velja fulltrúa sem sé keppninni til sóma bæði hérlendis og erlendis.

Jón Gunnlaugur Viggósson, sem hafnaði í 2. sæti keppninnar, mun taka við titlinum.

Úff þetta er svakalegt... En úr einu í annað...

Nú eru Angelina Jolie og Brad víst ótrúlega ástfangin og hefur maður séð myndir af þeim í flestum slúðurblöðum. Smá pæling...

Ef Brad liti svona út þá held ég að Jolie mundi aldrei vilja eingnast barn með kappanum. Úff thats one hell of a pillsbury´s dough boy!

Það er ekkert planað hjá mér um helgina, enda finnst mér það best. En reyndar hlakka ég smá til í að kíkja á djammið með Sigurbjörgu og Sigrúnu á morgun, en kannski breytist það, hver veit.

Annars bið ég bara að heilsa og vona að allir hafi það rosalega gott um helgina:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 03:51:12 / erny_atla

Golden Globes...

Hjellú allir saman, já kjólar eru mjög mikilvægir í augum okkar kvenna, það jafnast ekkert á við glæsilega kjóla og þeir kjólar sem eru ekki að falla í kramið, hvað gerum við þá? Jú mikið rétt við púmum á svoleiðis sóðaskap og reynum að fyrirgefa ef viðkomandi mætir næst í sómasamlegum kjól...

Ungfrú Hroki og Hleypidómur má svo sannarlega eiga það að vera næstum alltaf vel klædd, þessi flotti kjóll er alveg að gera sig, meira að segja með þesssum reipum og dúskum. En svakalega er hún mikil mjóna! 8 stjörnur segi ég nú bara! Ójá gleymdi, kjóllinn er Valentino... ÚÚÚ...

Emma Rossum klæddist Dior kjól frá John Galliano, ég er smá að fýla hann.

Æjæj, Pamela mín, loksins þegar þú ákveður að KLÆÐA þig þá þarftu endilega að vera smá hallærisleg, þessi Bill Blass kjóll er eitthvað svo 80´s enda á hann víst að vera ,,vintage". Ég held að kjóllinn hefði verið betri ef hvíti liturinn væri efri parturinn og svarti neðri. En góð tilraun.

Ég kýs Jessicu Alba drottingu kvöldsins, vá hvað hún er alltaf glæsileg og þessi kjóll er sérstalega flottur, það lá við að hjartað í mér stoppaði. Snillingurinn Donnatella Versace er yfirleitt að standa sig

. Pathrow var dálítið ömmuleg í þessum kremaða kjól, og skórnir pínu í gladiator stíl... Ekki nógu gott. Balenciaga.

Sara Jessica er næstum alltaf svo flott... En hvað kom eiginlega fyrir, er hún að breytast í Plane Jane? Það er spurning... Rochas

Hmm... , flott par en ekki nógu gott! Costume national hönnun, en samt flott efni í kjólnum.

Geena Davis var æði í Beatlejuice en hún er ekki æði í þessum kjól, I say that its just horrible, period. Escada.

 Ok mér finnst Scarlett Johansen ótrúlega myndarleg og flott, en kjóllinn er svo venjulegur eitthvað, hún myndast allavega ekki vel í honum. Valentino. Og svakalega er hún með mikinn barm...

Réene er að mínu mati alltaf í eins kjólum, nema í þetta skiptið, glæsileg í Carolina Herrera.

 Suður- Afríska fegurðardísin er allt í lagi, la-la í þessum Chanel kjól, ég hef lesið að hún hafi verið dálítið feimin í kjólnum þar sem hann átti víst að vera gegnsær, en það sést ekki á þessari mynd.

 Þetta er kona sem kann ALDREI að klæða sig, enda virðist vera sem hún velji sér alltaf númeri minna í fötum, það er allt svo strekkt á henni. Chanel.

Önnur mynd af hinni stórglæsilegu Jessica Alba.

 Eins og mér hefur fundist Heath Leadger myndarlegur þá finnst mér eins og hann sér bara gamall karl þarna og konan hans er heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir í þessum kjól, hún er of lítil í hann, held ég...  Dries van noten og Givenchy.

 Fallegasta kona í heimi og fyrirmyndin mín Natalie Portman er alltaf glæsileg, hér er hún í vintage Chanel.

Brjálaður kjóll og skemmtilegur. VERSACE.

 Einhverstaðar las ég að Reece hafi séð eftir því að hafa klæðst þessum kjól vegna þess að Kirsten Dunst hafi verið í sama kjólnum nema tveimur árum á undan. Mér er slétt sama um það, hún er bara dúlla í þessum kjól og hananú. Canel vintage.

Jæja, það er alltaf gaman að pæla í þessu, spurning hvort ykkur finnist það sama, en þið stelpurnar hljótið að styðja mig í þessu. ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 02:11:04 / erny_atla

Gleðilegt nýtt ár!!

Halló, halló og gleðilegt nýtt ár öllsömul! Hér ligg ég upp í rúmi með jólaöl í annarri og tölvuna á maganum klukkan tvö að nóttu og get bara alls ekki sofnað... Hmmm... gæti verið Macintoshið sem ég var að hlaða í mig áðan8|.

Úff hvað það hefur verið mikið af ljúffengum mat, nammi og ís síðastliðna daga, maður úðar í sig, og þó svo að maður sé orðinn nokkuð saddur. Eða já... Kannist þið nokkuð við þetta? :D ALLT OF HUGGULEGT.

Jebb, jebb annars fórum við fjölskyldan til Hólmavíkur um áramótin og það var bara ótrúlegt stuð í þorpinu á gamlárskvöldi. Ég og Guðrún systir skelltum okkur á braggaball (ball í eldgölum bragga). Og var það alveg ágætt, reyndar hefði músíkin mátt vera örlítið betri. Líka alltaf þegar við vorum eitthvað að kvarta þá voru allir að skjóta á okkur ,, BORGARBÖRN", og okkur fannst það leiðinlegt til lengdar þannig að við létum eins og allt væri í himnalagi. Ég tók fullt af myndum... Bara svona fyrir þá sem hafa áhuga. Já, og svo eru líka einhverjar myndir frá jólunum.

Þegar ég er ein vakandi svona á nóttunni þá er ég svo hyper að mig langar að hækka í botn í græjunum og æfa moonwalkið mitt... En ég verð að taka tillit til annarra á heimilinu:) That´s how life goes. Anyways ég segi bara blosssss!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 02:29:30 / erny_atla

Puff get ekki sofnað!

Vá hvað ég á erfitt með að sofna...

Sniðugt að setja þá inn nýja færslu:)

Ég fór á jólahlaðborð í Stapanum sl. laugardag, og vá hvað ég mæli með því. Maturinn var yndislega góður. Fyrirtækið sem Örvar vinnur hjá bauð og var svakalegt stuð! Vil ég hér með þakka öllum sem voru þar fyrir frábæra samveru!

        En já og jæja, þið sem skoðuðu myndirnar skoðuðu þið nokkuð tískumyndirnar? Væri alveg til í að fá komment á þær, en ég skil samt mæta vel ef þið hafið ekki einu sinni látið ykkur detta í hug að smella á albúmið, hehe svona getur maður verið áhugasamur.

Ég horfði á Ungfrú Heim á laugardaginn eins og margir aðrir og VÁ hvað Unnur Birna er glæsileg, rosalega gaman að fulltrúi okkar hafi verið valin Ungfrú Heimur! Enda á meða keppninni stóð þá var ég ekkert smá stressuð, þá sérstaklega þegar hún var komin í sex manna úrslit, hjartað mitt hamaðist og þá lýg ég ekki. Ég vona að hún hafi fundið ,,stuðningsstraumana" frá mér! Neee... bara djóka.

Ég er að fara í bíó á morgun með Örvari, Sigurbjörgu og Björgini og ætlum við að sjá myndina King Kong. Sigurbjörg vann miðana á einhverri útvarpsstöð og byrjar myndin ekki fyrr en um miðnætti, og er myndin í 3 tíma, þannig að ég verð að vera vel úthvíld og því ætla ég að slútta:)

BÆJÓ


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 14:49:57 / erny_atla

MYNDIRNAR KOMNAR!!

Ég ætlaði bara að láta ykkur vita að myndirnar eru komnar:)

                                      Enjoy...

                             

       Ernest:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 00:28:31 / erny_atla

Minningar

Ég man þegar hann Gummi bróðir var alltaf að rugla í mér því ég varð alltaf svo reið þegar hann stríddi mér og verð það ábyggilega enn:)

Þegar ég var yngri þá fannst mér ótrúlega gaman að búa til einhver ,,bull" orð, og áttu þau einn daginn að birtast í orðabók sem ÉG samdi, semsagt mér fannst alveg geggjað cool ef ég mundi búa til mitt eigið tungumál, dálítið steikt en... Alltaf þegar ég var að monta mig af orðunum mínum þurfti Gummi alltaf að segja að hann hafi fundið upp á orðunum á undan mér. Og þá var ég BRJÁLUÐ!.. Stríðnispúki...

Allavega, svo einn daginn segir Gummi við mig að hann sé kominn með sitt eigið orð ,, askabirdy". Ég og Guðrún systir vorum yfir okkur hrifnar og hlógum okkur máttlausar þegar hann sagði þetta orð. En nei, nei svo náttúrulega föttuðum við að þetta var bara ASK A BIRD´Y... Spyrjið fugl?? Jæja þannig að við létum bróður okkar fá það óþvegið og sögðum honum að hann væri lélegur í að semja orð. Nú svo lagði Gummi höfuðið i bleyti og sagði svo við okkur einn daginn á leiðinni til Reykjavíkur að hann væri með eitt svakalegt orð ,,Studybaker". Við hlógum og hlógum... og hlógum.... EEEn, nokkrum árum seinna þá var ég að horfa á bíómynd og sá að Studybaker var bílategund!!! What... Gummi var þá alveg svakalega lummó og við gerðum ótrúlega mikið grín af honum:)

En svona var þetta, ruglið í okkur var endalaust og hlátursköstin endalaus plús einn!

En já ég ætlaði svo að láta vita að það það gengur frekar hægt með að setja þessar myndir inn á netið, það kemur bara alltaf ,,cannot find server", þannig að ég verð kannski að skipta um myndasíðu. Ætla að gera eitthvað í þessu.

En þangað til næst

Bæjó


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 01:34:02 / erny_atla

jæja:)

Komið þig sæl!
Nú hefur margt gerst síðan ég bloggaði síðast. Eins og þið vitið þá var ég í Los Angeles sem var æði og ætla ég að setja myndir inn bráðlega. Vá, við sáum hús margra... Hmmm... m.a Toby Mcguire, Spelling fjölskyldunnar, gaurinn sem á gallabuxnafyrirtækið GAS (shit bílarnir þarna fyrir utan voru allir í kringum einhvern gosbrunn fyrir framan hús... LOTUS, FERRARI, PORCE... ÖSS). Svo sáum við húsið hennar sem leikur Karen í Will og Grace, gamla húsið hans John Lennons, Drew Barrymore, Charlize Theron, Hugh Hefner, Janet Jackson... vá og svo fullt meira! Þetta var MAGNAÐ. Mæli með þessu, sinnum þúsund! Algjör pílagrímaferð fyrir fólk sem er dreymið og er forvitið um Hollywood sjörnur.
       Núna er maður kominn aftur í sitt venjulega far, hef verið að gera jólakort handa mömmu (svona næstum árlegt hjá manni). Og svo fór ég á Laugarvatn í afmæli til Sigurbjargar vinkonu, sem var magnað!!! Svooo... gaman. En eins og ég segi þá fer ég að setja inn myndir frá L.A og líka Barcelona:)

Kveð að sinni...


» 43 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4